Ég er ekki að gera mikið af viti, athyglisgáfan í algjöru lágmarki, einbeitingarskortur í sögulegu hámarki.
Vefdagbækur eru afar lélegar heimildir, hálfgerður uppspuni þegar maður spáir í því. Ekki útaf því að fólk sé sífellt að ljúga heldur vegna þess að oft er ekki sagt frá því sem mestu máli skiptir.
Það á við um þessa vefdagbók.
Ég hefði betur sleppt því að fara á fætur, eða svo ég vitni í skáldið.
Today I've achieved absolutely nought
In just being out of the house, I've lost out
If I wanted to end up with more now
I should've just stayed in bed, like I know how
|
www.flickr.com
|