Örvitinn

Nóg að gera

Er að fara með Kollu í dans, dunda mér með Ingu Maríu á meðan Kolla dansar. Gyða fer í vinnuna og við stelpurnar þurfum að finna okkur eitthvað að gera til þrjú en þá verðum við komin heim að horfa á Liverpool í sjónvarpinu. Ætlum að kaupa pez, það er það eina sem er komið á hreint.

Innibolti klukkan fimm og kvenfélagsfundur í kvöld.

Á morgun er það eldamennskan, ætlum að halda lítið matarboð í tilefni sextugsafmælis tengdamóður minnar. Ætla að elda indverskan mat, lambakjötsrétt úr síðasta Gestgjafa, einhvern kjúklingarétt, grænmeti í karrý, eitthvað meira meðlæti og svo nan brauð frá Austurlandahraðlestinni. Geri ráð fyrir að dagurinn fari allur í þetta.

dagbók