Er að horfa á boltann, ekki gengur mínum mönnum vel. Sötra bjór úr flösku, hann gengur ágætlega.
Fór með Jónu Dóru og Óttari í tölvukaupaleiðangur. Fengum okkur svo að borða í Kringlunni í hádeginu, fékk mér quesadillas með kjúkling sem var afar fínt. Þetta er það sama og Ásmundur og Harpa gerðu í afmælinu hans pabba. Kolla og Inga María fengu tacos og voru sáttar.
Keypti Gestgjafann og er búinn að ákveða matseðilinn annað kvöld. Tikka masala kjúklingakarrí, Indverskur lambakarríréttur og blandað grænmeti í karríi úr AB bókinni. Raita, nanbrauð og mangómauk. Gyða verslar í matinn núna á eftir.
Jæja, nenni ekki að svekkja mig á úrslitum dagins - er farinn að brillera í innibolta!
|
www.flickr.com
|