Er drulluslappur, þreyttur og með hálsbólgu (tja, eða að minnsta kosti finn ég til í hálsinum). Svo svíður mig meira að segja í puttann sem ég gerði tilraun til að stytta í gær.
Kannski eru þetta bara eftirköst helgarinnar. Það tekur á að djamma fram undir morgun og ekki mikil hvíld fólgin í því að eyða öllum deginum í eldamennsku.
Mér er skítkalt, þó ég sé í þykkri peysu skelf ég eins og hrísla og svo vottar fyrir svima. Er ennþá aumur í hálsinum, lystarlaus - er búinn að borða eitt mjólkurkex og drekka einn Magic í dag. Ætla að rölta út í Nettó og kaupa mér eitthvað, sjá hvort þetta skáni.
Sitt kappklæddur við tölvuna í vinnunni. Kominn með beinverki. Stuð.

38° með munnmæli, maður á víst að bæta 0.5° við það.
38.5° + 0.5
|
www.flickr.com
|