Er enn heima veikur, held ég sé að setja persónulegt met hvað veikindi varðar. 38° áðan og hálsbólga.
Fór snemma á fætur og skutlaði stelpunum í leikskólann. Auðvitað var hríð fyrst ég var að laumast út.
Ligg í sófanum með kveikt á popptíví, ráfa á netinu, kíki á tölvupóstinn í vinnunni og læt mér leiðast.
Farðu vel með þig þú átt alla mína samúð að þurfa hanga heima veikur. Er líka í þessum pakka og dauðleiðist.
Ég fer vel með mig, þ.e.a.s. ef það telst góð meðferð að liggja í sófanum og gera ekki neitt :-)
|
www.flickr.com
|