Örvitinn

Sjálfsmynd

Ég er slappur, með hita og gengur á með beinverkjum og eyrnaverkjum. Gott ef ég er ekki kominn með nettan hausverk líka.

Hef verið að rembast við að redda hlutum í vinnunni, gengur hægt en gengur þó eitthvað. VNC sem virkaði svo fínt í gær virkar ekkert í dag. VPN virkar þó þannig að ég get gert ýmislegt. Sótti .gz skrá áðan sem XP höndlar ekki, var næstum því búinn að sækja eitthvað forrit en leysti málið með þremur línum í python - alltaf gaman þegar maður getur notað python, jafnvel bara til að afþjappa skrá.

Ég er ekki búinn að raka mig í tólf daga, er að spá í að bíða með það aðeins lengur.

Ýmislegt