Örvitinn

Fimm ára skoðun

Kolla er komin með vottorð upp á að hún sé fimm ára, búin að fá stimpilinn fullkomið fimm ára barn. Stóðst allar prófanir með glans og rúmlega það. Hún er 111 cm og 19kg.

Þurftum að fresta sprautunni þar sem Kolla er á sýklalyfjum vegna eyrnabólgu. Mætum í sprautu áttunda mars.

Kolla með lepp fyrir öðru auga

Hún tók sig vel út með leppinn, stundum ruglaðist hún á minnstu stöfunum en held það hafi lítið haft með sjónina að gera. A.m.k. varð hún betri þegar á leið. Reyndar sagðist hún sjá miklu betur með vinstra auga eftir að við færðum leppinn. Veit ekki hvort eitthvað er að marka það.

fjölskyldan