Örvitinn

Fimm ára sprautan

Kolla á bílastćđinu eftir sprautunaKolla gat ekki fengiđ sprautu ţegar viđ fórum í fimm ára skođun um daginn ţar sem hún var ađ taka sýklalyf útaf eyrnabólgu.

Í dag var kominn tími á sprautuna og áđan skaust ég og sótti Kollu á leikskólann og kíkti á heilsugćsluna.

Kolla var ósköp róleg útaf ţessu en ţegar viđ vorum kominn inn og hún stóđ í fanginu mínu stressađist hún ađeins upp, ţó ekki jafn mikiđ og pabbi hennar. "Hér kemur flugan" sagđi hjúkkan, "nú stingur hún" og svo stakk hún sprautunni á bólakaf í rasskinn. Ég fékk sting í magann, Kolla kúrđi í fangiđ mitt og sagđi ósköp lágt "ái". Svo var ţetta búiđ.

Ţessi stelpa er hörkutól. Myndina tók ég á bílastćđinu í Mjódd eftir sprautuna. Held hún hafi fariđ hjá sér, pabbi hennar var svo stoltur af ţessari frammistöđu.

fjölskyldan