Örvitinn

Svefnrugl

Ég þarf að fara að ná tökum á nætursvefninum, þetta er komið í rugl. Vaki til tvö allar nætur og á afskaplega erfitt með að vakna á morgnana. Í morgun svaf ég meðan stelpurnar klæddu sig sjálfar. Fór loks á fætur þegar ég þurfti að aðstoða Kollu eftir klósettferð.

Ekki var nóg með að ég færi seint að sofa heldur vaknaði ég frekar illa um miðja nótt. Förum ekkert nánar út í það hér.

Ætla að skella mér í fótbolta klukkan ellefu. Fátt sem kemur manni jafn vel í gang og smá hamagangur.

dagbók