Heldur betur ástand á heimilinu, Inga María er veik. Ældi tvisvar áðan hjá eyrnalækninum og svo einu sinni þegar við komum heim. Er að horfa á stubbana. Nei, hún er sofnuð í sófanum.
Ég er drulluslappur og var búinn að ákveða að taka mér veikindafrí á morgun. Við verðum saman heima á morgun að dunda okkur við stubbagláp.
Nú er tækifæri fyrir þig að biðja guð um lækningu.
Já en hvaða Gvuð? :-) Slæmt ef maður klúðrar þessu og móðgar hinn eina rétta, sá gæti þá magnað upp pestina.
Vona að henni batni sem fyrst ja og þér auðvitað líka. Baddi er fárveikur hér heima með ælupest ojjjj og daman eitthvað slöpp líka en vona að þau verði hressari á morgun.
|
www.flickr.com
|