Örvitinn

Hætt við veikindi

Ég og Inga María hættum við að vera veik í dag, hún er á leikskólanum og ég mættur í vinnuna.

Inga María vaknaði hress og kát í morgun og ég er miklu betri en í gær. Fer heim ef ég verð eitthvað slappur. Ef heilsan helst góð skelli ég mér á Players í kvöld að horfa á Liverpool leikinn.

Aftur á móti kom Áróra heim úr skólanum áðan eftir að hafa ælt.

dagbók
Athugasemdir

Sævar Helgi - 16/03/05 18:41 #

Sko, ég bað til Seifs um lækningu fyrir ykkur og sjá hvað gerist? Grísk goðafræði er eina rétta trúin!