Örvitinn

Skrítinn húmor, fegurð og tilveran

Afskaplega þykir mér það undarlegur húmor að taka mynd af þessari síðu og setja á hot or not. Það eitt og sér væri svosem saklaust, en með því að setja einnig vísun á tilveruna finnst mér þetta komið út í illkvittni. Sérstaklega í ljósi þess hver gerði þetta.

Auðvitað sé ég hver er á bak við þetta, ekki flókið að tengja þegar ákveðinn aðili skoðar myndasíðuna og endar á akkúrat þessari mynd örskömmu áður en þetta er gert. Já, ég veit hver er með þessa ip-tölu, kommon, það eru athugasemdir á þessari síðu frá þessari addressu.

En ég gaf mér toppeinkunn enda þykir mér ég afar fagur :-P Ætli það sé ekki það sem þessir aðilar höfðu í huga, ég væri svo rosalega góður með mig og þetta myndi lækka í mér rostann - ég veit það ekki. Ef fólk heldur að ég þjáist af of miklu sjálfstrausti hefur það rangt fyrir sér.

00:30
Ég var með vísun á myndina á hot or not en það er búið að fjarlægja hana þar. Annað hvort gerði fyndna fólkið það eða, sem mér þykir líklegra, hot or not fjarlægðu hana enda tilkynnti ég að það væri verið að misnota myndina. Ég á varla að þurfa að taka það fram að ég á höfundarétt á öllum myndum á þessari síðu og það hefur enginn leyfi til að nota þær án heimildar frá mér.

Ýmislegt