Ég er afar ósáttur við þessa ómerkilegu lygi Lárusar Páls Birgissonar.
Og ekki stóð á svari frá mesta vantrúarnöttaranum ever sem fúnkerar ekki einu sinni á umræðufundum siðmenntar.
Mér er drullusama þó hann kalli mig vantrúarnöttara, annað eins hef ég látið frá mér, en að hann haldi því fram að ég hafi ekki fúnkerað á umræðufundum Siðmenntar, sem reyndar voru umræðufundir SAMT, er sérstaklega rætin lygi. Lárus Páll Birgisson er ómerkilegur lygari þegar hann dreifir þessu, skiptir engu máli þó hann sé sár og fúll útaf öðrum málum.
Ég hef grun um hvað hann er að tala um og hvaðan hann hefur það og finnst sérlega leiðinlegt ef svo er.
þá fullyrði ég það að fólk sem hefur orðið vitni af reiðiköstum þínum og hurðaskellum sé mun hæfara til að meta undarlega hegðun þína en þú sjálfur. Já Matti, orðspor reiðikasta þinna fer víða.
Þetta er einfaldlega lygi, ég hef aldrei misst stjórn á mér eða skellt hurðum á SAMT fundum. Þetta "fólk" sem hann vitnar í mætti gjarnan koma fram og halda öðru fram.
|
www.flickr.com
|