Örvitinn

DV í dag

Forsíða DV í dagKíkti á DV í Nettó áðan og það var eins og mig grunaði, forsíðufréttin er stormur í vatnsglasi, algjör tittlingaskítur. Foreldrar sem taka börnin sín úr fermingarfræðslu sökum þess að þar er talað um sjálfsfróun eru, að mínu hógværa mati, snarbilaðir. Krakkar á fermingaraldri rúnka sér, það er eðlilegt og presturinn var að reyna að koma því á framfæri. Atvikið með kústinn virðist svo hafa verið óhapp samkvæmt fréttinni, þó annað sé gefið í skyn á forsíðu og í fyrirsögnum.

Eins og mér finnst DV hafa staðið sig vel við að flytja fréttir af ofbeldismönnum, samanber fréttir af handrukkurum fyirir norðan, og tekist þannig að réttlæta tilvist blaðsins, skemma þeir afar mikið fyrir sér með óheiðarlegum uppslætti eins og þessum.

fjölmiðlar
Athugasemdir

Óli Gneisti - 26/04/05 15:42 #

Ég veit reyndar ekki hvaða menntun prestar fá um sjálfsfróun né hvað gerir þá hæfa til að ræða um málið ....

sleppi brandaranum sem mér kom í hug...

Matti Á. - 26/04/05 15:49 #

Neinei enda er nú ekki hægt að skilja fréttina þannig að þarna hafi átt sér stað ítarleg kennsla um sjálfsfróun heldur umræða um að þessi athöfn væri ósköp eðlileg.

Kannski, og þá ítreka ég kannski, er gagnrýnivert að láta krakka rétta upp hönd sem hafa stundað slíkt enda krakkar oft lokaðir og viðkvæm fyrir stríðni, en á móti kemur að þeir sem réttlæta fermingar tala iðulega um að þetta séu svo þroskaðir einstaklingar. Fermingarbarn sem ekki stundar sjálfsfróun finnst mér, tja.... skrítið.

Óli Gneisti - 26/04/05 16:08 #

Var þá kústurinn kannski notaður í sýnikennslunni? Nei, nú er ég bara leiðinlegur....

Elvar - 26/04/05 16:12 #

Mér skilst nú reyndar að heimildavinna á bak við þessar fréttir af handrukkurum norðan heiða sé með eindæmum léleg. Segir sagan að ítrekað sé verið að birta röng nöfn á þeim kumpánum.

Ekki þekki ég þá persónulega og veit því ekki hvernig málum er háttað í raun, hvort að DV er virkilega SVO lélegt. Það er afburða döpur staða ef að dagblað leyfir sér ítrekað að framkvæma það sem ég er einmitt að gera hér og nú, henda fram einhverjum gróusögum án ábyrgðar.

Matti Á. - 26/04/05 16:17 #

Já, heyrði að þeir hefðu sett mynd af fórnarlambinu fyrir norðan á forsíðu ásamt öðrum ofbeldismanninum og í fyrirsögn gefið í skyn að þarna væru báðir ofbeldismennirnir í því máli. Þannig að þó ég telji það DV til framdráttar að þar er fjallað á hispurslausan hátt um ofbeldismenn, þá er ljóst að það þarf að vanda til verka og það virðist stundum vefjast fyrir blaðamönnum þar á bæ.