Örvitinn

Hjólreiðatúr

Við hjónin skeltum okkur út að hjóla áðan. Tókum smá hring, byrjuðum á bensínstöð þar sem við pumpuðum í dekkin, hjóluðum yfir í Vatnsendahverfi og í gegnum Salahverfi í Kópavogi á bakaleiðinni. Lítill og léttur hringur.

Gott að vera búinn að draga hjólin fram, nú þarf ég bara að finna eitthvað plan svo ég geti hjólað í vinnuna.

Eina sem vantaði voru hjálmarnir, sem við fundum ekki áðan og vettlingar því það var kaldara en ég gerði ráð fyrir.

dagbók