Örvitinn

Á nýjum stað

Mættur á nýjan stað, er að setja upp vélina og koma mér inn í hlutina.

Kynningarhlutinn frekar fyrirhafnarlítill þar sem ég þekki stóran hluta starfsmanna, bæði af fyrri störfum og úr boltanum.

dagbók
Athugasemdir

Haukur Þorgeirsson - 04/05/05 20:49 #

Stefja.is já. Þegar ég beini vafranum mínum að þeirri síðu fæ ég upp "Untitled Document" sem upplýsir mig um eftirfarandi:

in order to view this page you need ie v.4.+ or netscape/opera v 6.+

Þetta finnst mér sérstaklega íronískt í því ljósi að þessa stundina er ég einmitt að nota IE6.

Væntanlega hef ég stillt vafrann minn á e-n hátt sem þessari síðu þóknast ekki. Hún er síðan svo vönd að virðingu sinni að hún vill ekki sýna sig ef hún heldur að hún gæti komið e-ð óvenjulega út.

Svona lagað finnst mér alltaf fremur þreytandi.

Matti Á. - 04/05/05 22:10 #

Æi, þetta er mér að kenna, fyrirtækið heitir nefnilega Trackwell í dag. Ég hangi bara í þessu útaf hefðinni.