Árásagjarnar fyllibittur

Áfengi hefur óskaplega mismunandi áhrif á hegđan fólks. Sumir verđa glađir, flestir građir og margir syfjađir. En sumir verđa afskaplega aggressívir undir áhrifum áfengis. Ţađ fólk ćtti ađ láta áfengi eiga sig.

Einn félagi minn úr Stjörnunni og Verzló var svona. Afskaplega rólegur og viđkunnalegur náungi, en ţegar hann fékk sér í glas varđ hann undantekningarlaust árásargjarn. Ekki ţađ ađ hann vćri alltaf ađ slást, heldur var hann alltaf međ bölvađa stćla ţegar mađur hitti hann á lífinu. Ađ lokum var ég einfaldlega farinn ađ forđast hann í glasi.

Hitti einn svona náunga nýlega. Sá var orđinn vel ölvađur og hafđi allt á hornum sér, allir í kringum hann voru bölvađir fávitar og allt sem ţeir sögđu algjört bull. Ţessi snillingur náđi ađ drepa stemminguna á mettíma og eyđilagđi allar áćtlanir um rólega stund á góđum stađ. Ţađ var ekki nokkur leiđ ađ sitja saman og segja sögur međ hann á stađnum. Ţađ hjálpađi ekki ađ sumir voru úttaugađir og ţreyttir, en sökin liggur öll hjá árásargjörnu fyllibittunni.

Merkilegt hvađ leiđindapésar geta skemmt mikiđ.

16.05.2005 08:41 Ýmislegt
Mynd sem Kolla teiknađi af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com