Örvitinn

Hjólaði í morgun

Hjólaði í vinnuna í fyrsta sinn í morgun. Var um fimmtán-sextán mínútur á leiðinni. Þetta er ósköp þægileg leið, fyrri hluti úr Breiðholti niður á við og seinni nokkuð þægilegur. Þetta voru því engin átök en ég skellti mér samt í sturtu á neðstu hæðinni. Eina vandamálið er að ég hef enga aðstöðu til að þurrka handklæðið og svitagallann.

Það verður örlítið erfiðara að hjóla til baka, svitnaði þokkalega síðast.

Þess má geta að Gyða hefur verið óskaplega dugleg að hjóla í vinnuna undanfarið. Hún var eitthvað að svekkja sig á því um daginn að ég hefði ekkert minnst á það hér :-)

dagbók