Örvitinn

Blindur leiðir blindan

MBL: Tveir trúflokkar mótmæla hjónaböndum samkynhneigðra

„Bæði kristnir menn sem íslamstrúar trúa því að Guð hafi aðeins ætlað manni og konu að ganga í heilagt hjónaband. Bæði Biblían og Kóraninn lýsa þessu,“ sagði Jan Gossner, forstöðumaður kirkjusafnaðar í Kristiansand, í samtali við norska dagblaðið Aftenposten í dag.

„Bæði kristnir menn sem íslamstrúar trúa því að Guð hafi aðeins ætlað manni og konu að ganga í heilagt hjónaband“

Sér enginn hvað þetta er mikil sturlun?

Hvað ef þessir sauðir myndu segja „Bæði kristnir menn sem íslamstrúar trúa því að Guð hafi skapað karlinn til að hafa stjórna fyrir konunni“? Nei, bíddu - þeir segja það enn sumir og sögðu það flestir fyrir ekki svo löngu síðan.

Ok, hvað með „Bæði kristnir menn sem íslamstrúar trúa því að ósýnilegur draugur vaki yfir þeim og að réttlætanlegt sé að myrða annað fólk í hans nafni“! Nei bíddu við, þeir segja það enn sumir og sögðu það flestir fyrir ekki svo löngu síðan.

Það sem eftir stendur er að „Bæði kristnir menn sem íslamstrúar eru auðtrúa bjánar sem trúa bölvaðri vitleysu vegna þess að það veitir þeim einhverja undarlega fróun“ A.m.k. sumir.

kristni
Athugasemdir

Matti - 08/06/05 18:12 #

Jújú.