Örvitinn

Bruðlað í hádeginu

Leysti út ávísun frá tollstjóra þegar ég var búinn í ræktinni í hádeginu. Fékk ávísunina fyrir löngu (man ekki hvenær), hefur legið á skenknum á ganginum síðan. Skellti mér þvínæst í BT og keypti tvo diska. Mezmerize með System Of a down og With_teeth með NIN. Búinn að rippa diskana og kópera yfir í símann.

Nú er fjör :-)

dagbók
Athugasemdir

Mummi - 09/06/05 15:11 #

Hvernig er svo Mezmerize?

Matti - 09/06/05 15:20 #

Ég er bara búinn að renna honum einu sinni í gegn - veit það eiginlega ekki alveg ennþá :-) Þarf alltaf nokkrar umferðir til að melta tónlist.

Regin - 09/06/05 16:32 #

Ég er búinn að vera með Mezmerize í spilun í nokkra daga. Þetta er öskrandi snilld.

Matti - 10/06/05 14:56 #

Já fjandakornið, ég er að fíla þetta.