Örvitinn

Milli pungs og rassgats

Hvað heitir svæðið milli pungs og rassgats? Skiptir ekki máli. Það sem skiptir máli er að ég er aumur þar eftir spinning á þriðjudag. Þetta er eiginlega frekar fyrir aftan punginn en framan rassgatið, það finnst mér alla vega. Huganlega er það vegna þess að ég kem framan að þessu máli. Held ég hafi nuddað þessu við spinninghjólið á tímabili. Hvað veit ég svosem, kannski var það boltinn um kvöldið, kannski stuttbuxurnar.

Olli því að ég nennti ekki að hjóla í morgun en ætla í ræktina eftir vinnu. Reyndar ætlar fólk að fá sér eitthvað smá öl á eftir en ég læt það eiga sig í þetta skipti.

dagbók
Athugasemdir

himmih - 16/06/05 11:57 #

Mér skilst að umrætt svæði kallist spöng. Sel það þó ekki dýrara en ég keypti það.

Erna - 16/06/05 12:17 #

Ehrm Hefurðu spáð í að fá þér Bodyglide? Svínvirkar hef ég heyrt, veit samt ekki hvernig það virkar á þetta svæði sem þú talar um, eðlilega.

Matti - 16/06/05 12:30 #

Af einhverjum ástæðum (karlremba?) tengi ég spöng við konur en ekki karla.

Þetta hefur ekki verið vandamál hingað til, þannig að ég hef ekki verið að spá í bodyglide - en maður skoðar það kannski ef þetta verður viðvarandi ástand :-)

Hr. Pez - 16/06/05 12:33 #

Spöng er það, fyrir bæði kyn. Kynjamunurinn liggur í því að karlarnir lenda sjaldnar í að það þurfi að sauma það saman.

Lárus Páll Birgisson - 18/06/05 05:58 #

Þetta svæði kallast víst matti......eða var það kannski það sem kemur útúr rassgatinu...?

Matti - 18/06/05 09:25 #

Lárus, ég lagaði kommentið þannig að fullt nafn kæmi fram.

Veit ekki hvort þú ert að reyna að vera fyndinn - er hugsanlegt að þú sér svona ótrúlega bitur?

Hvað um það, vertu annars staðar - þú ert ekki velkominn hér frekar en annars staðar. Frekari athugasemdum frá þér verður eytt óháð innihaldi. Ég fyrirlít lygara og slefbera eins og þig. Eins og atburðir síðustu vikna á Vantrú sína ertu auk þess falsari, hikar ekki við að koma fram undir fölsku nafni (vinar þíns!) og gerir allt sem þú getur til að valda sem mestum leiðindum. Þú kannt greinilega ekki að skammast þín.

Hvað segirðu um að ég hringi í yfirmann þinn á spítalanum og kvarti ? Þú ert að stunda þessi skemmdaverk í vinnutíma og notar til þess tölvubúnað spítalans!

Vésteinn - 19/06/05 00:43 #

Lárus notar vinnutölvuna til að vera með dónaskap. Ojbara.

Ég held að það sé rétt að þetta heiti spöng - en allavega hef ég heyrt að enska heitið sé "choda".