Ég fer ekki á Duran Duran tónleikana annað kvöld. Er ósköp latur við að kíkja á tónleika þetta árið.
Fór aftur á móti á tónleika með Duran Duran í Birmingham fyrir rúmu ári og það voru verulega góðir tónleikar.
Mér og Stebba þótti það eiginlega frekar fyndið að fara á Duran tónleika þar sem þetta tengist alls ekki ferðinni, vorum að fara út til að sjá Liverpool vinna Manchester United, en vorum báðir mjög sáttir við sýninguna og held að allir í hópnum hafi verið sama sinnis.
Þannig að ég held að fólk megi búast við fínum concert annað kvöld.
Ég kíkti á tónleikana í gærkvöldi. Mér fannst þeir nú magnaðir, svakalega góðir tónleikar. Maður kemst nú samt ekki hjá því að bölva því annað slagið að vera ekki nokkrum sentímetrum stærri, ég sá nánast ekkert, en það kannski ekki aðalmálið, frábær tónlist bara.
Ég þekki það vel að fara á tónleika og sjá ekki neitt - agalega pirrandi :-)
|
www.flickr.com
|