Örvitinn

Ekki sambandslaus enn

Neinei, ég er enn í loftinu. Nenni bara ekki að skrifa. Þetta Gerrard ævintýri hefur átt hug minn síðustu daga, nenni ekki að blogga um það. Segi bara eins og Einar, hvaða Gerrard?

Var að setja upp serverinn til fjögur í nótt. Gekk nokkurn vegin frá þessu, flutti bloggið mitt yfir og fékk allt til að virka. Á eftir að redda einhverjum smáatriðum. Inga María vakti mig með hörku í morgun, fékk ekkert að kúra lengur :-)

Fór með vélina í vinnuna í dag en stakk henni ekki í samband, reyni að gera það á morgun.

Helvíti fín fótboltaæfing í kvöld í flottu veðri. Sextán mættir þrátt fyrir nokkur forföll og ágætis bolti í gangi.

dagbók