Henson 0 - 1 Metró
Leikurinn fór fram í sæmilegu veðri á Framvelli klukkan hálf átta í kvöld. Smá rok og nokkrir dropar en ekkert til að væla undan.
Nokkuð jafnræði var með liðunum en Metró fengu gjöf í byrjun leiks þegar Kristján, sem spilaði í marki í kvöld, gaf boltann beint á miðjumann Metró undir lítilli pressu. Miðjumaðurinn spilaði upp að teig og skoraði með góðu skoti úti við stöng hægra megin.
Það sem eftir lifði leiks voru Henson sterkara liðið en náði ekki að skapa mörg færi þrátt fyrir að pressa töluvert, sérstaklega í seinni hálfleik. Bragi átti samt skalla í slá og skömmu síðar ágætt færi eftir hornspyrnu. Metró voru hættulegir á breikinu en náðu ekki að nýta sér það. Þeirra besta færi var þegar Axel skallaði í stöng!
Leikurinn var sæmilega spilaður, eitthvað um brot en engin viljaverk. Nokkuð drengilega leikið. Dómarinn var ekki alltaf alveg með á nótunum en hvorugt liðið hagnaðist á því umfram hitt. Atvikið þegar hann dæmdi bakhryndingu á Kjartan í seinni hálfleik var magnað.
Ég spilaði slatta í kvöld, gerði engar gloríur en svosem ekkert stórkostlegt heldur. Henson liðið átti frekar dapran dag, vorum ekki nógu beittir fram á við en spiluðum ágætlega á köflum.
Tvær vikur í næsta leik, á móti Dragon, sem virðist vera besta lið riðilsins. Við þurfum að gera betur þá svo ekki fari illa.
|
www.flickr.com
|