Örvitinn

Vantrú.is

Skráði vantru.is í dag og setti upp svakalega flotta síðu til bráðabirgða. Notast við DNS þjóna Trackwell. www.vantru.is virkar ekki eins og er, villa í DNS skráningu, Krissi kippir því í lag á eftir. Ég var ekkert að hafa fyrir því að skrá Vantrú með ú-i, geri það kannski síðar.

Ég á svo eftir að flytja allt heila klabbið yfir, efast um að ég nái að gera það um helgina útaf veðri og því verður það að bíða betri tíma. Lenti líka í bölvuðu veseni með að exporta vefnum, hýsingaraðilinn er með keyrsluhöft á .cgi skriftum og því næ ég ekki að exporta öllu draslinu. Er með backup af gagnagrunninum en það er ekki að virka þar sem ég er með nýrri útgáfu af Movable Type á vélinni minni. Sýnist á öllu að ég þurfi að uppfæra allt heila klabbið fyrst og taka svo gagnagrunnsafrit og færa yfir.

(nb. svona DNS breytingar taka smá tíma að dreifast um netið þannig að hugsanlega geta ekki allir tengst, annars er ég óskaplega lítið inni í DNS málum)

tölvuvesen
Athugasemdir

Óli Gneisti Sóleyjarson - 22/07/05 16:35 #

Allt í einu byrjuðu tugir vitlausir hlekkir að virka. Enn fleiri munu bætast í hópinn þegar kemur að www.vantru.is