Örvitinn

Bakgrunnsvinnsla í MovableType

Prófaði að stilla MT þannig að rebuild á færslum eigi sér stað í bakgrunnsprocess. Sýnist þetta virka ansi vel. Nú líða ekki nema um fimm sekúndur frá því maður setur inn athugasemd þar til síðan kemur aftur.

Maður breytir þessu með því að edita mt.cfg skrána, setur þar LaunchBackgroundTasks 1.

Í öðrum fréttum er að Vantrú er komið á serverinn minn. Virkar dálítið betur. Á eftir að gera ýmislegt, færa spjallið og breyta í kjölfarið DNS stillingum fyrir vantru.net. En aðal dæmið er komið í höfn. Það var meiriháttar vesen að flytja Vantrúarvefinn frá netfirms en reddaðist að lokum.

movable type