18.08.05

Spjallið fært og uppfært

Síðustu fimm eða sex tímar hafa farið í að færa spjallkerfi Vantrúar yfir á serverinn. Ýmislegt komið upp á, maður er sífellt að læra eitthvað nýtt. Lærði nýja hluti um GRANT svo dæmi sé tekið, afar skemmtilegt. Mesta vesenið fór í að taka backup af gagnagrunninum hjá Netfirms og að uppfæra phpbb á nýja servernum.

Sé ekki betur en að allt virki þokkalega þessa stundina. Ég tók reyndar heldur hressilega til á spjallinu núna rétt í lokin en það gerir lítið til, á backup á þremur stöðum ef einhver kvartar.

18.08.2005 03:05 tölvuvesen
Athugasemdir
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com