Fimm punktar
Líkt og Óli var ég næstum orðinn bitur :-)
- Ég var að enda við að borða gulrót sem telst afar óvenjuleg hegðun af minni hálfu.
- Ég varð ekki smeykur við að deyja fyrr en ég eignaðist börn
- Dætur mínar segja að ég sé tölvusjúklingur, myndavélasjúklingur og knúsisjúkur.
- Ég er bæði feiminn og mannblendinn. Ég held að í gegnum tíðina hafi margir mistúlkað feimnina.
- Ég var hundrað og fimmtán kíló fyrir fjórum árum Eitt af því sem dreif mig áfram til að léttast var atriði nr. 2 á þessum lista. Ég þyngist ótrúlega hratt ef ég spái ekki í mataræði og hreyfingu. Það finnst mér pirrandi.
Ég læt þetta ekki ganga lengra, atriði númer sex gæti verið það að ég hef aldrei á æfinni látið keðju ganga :-)
18.09.2005 23:03
Ýmislegt