21.09.05

Risastór öskubakki

Mikiđ óskaplega fer ţađ í taugarnar á mér ţegar ég sé fólk henda sígarettustubbum út um bílglugga. Fyrir ţessu fólki er nánasta umhverfi einn stór öskubakki. Ţetta er ekki einu sinni sjaldgćf sjón, ég sé ţetta oft í viku og dreg ţá ályktun ađ ţetta sé ansi algeng hegđun. Hvar sem mađur gengur um sér mađur stubba, meira ađ segja á Ţingvöllum liggja stubbarnir á víđ og dreif.

Hvađ heldur ţetta liđ ađ verđi um stubbana, trúir ţađ á stubbaálfa?

Í morgun var ţađ stúlka á grćnni mösdu međ númerinu SL-957 sem henti hálfri sígarettu nćstum í framrúđuna hjá mér, hún fćr ţví stimpilinn sóđi dagsins.

sl957

21.09.2005 11:15 kvabb
Athugasemdir

Alvaran.com - 21/09/05 11:36 #

Hvađ ţá međ ţá sem henda glerflöskum út um bílglugga? Sjálfur reyki ég en hef ţá reglu ađ nota öskutrogiđ í bílnum til ađ losa mig viđ stubbana. Hef sjálfur oft fengiđ sígarettu í framrúđuna frá bílum á undan mér. Hef reyndar ekki tekiđ niđur númeriđ á ţeim, en ţađ er gustuk ađ gera ţađ og birta. Kanski mađur stofni ţráđ um ţađ á alvaran.com

Óli Gneisti - 21/09/05 11:37 #

Hefurđu lent í ţví ađ einhver fleygir út stubbi og hann lendir undir bílnum ţínum ţannig ađ reykingafýlan sogast inn? Ţađ er vibbi.

Matti - 21/09/05 18:53 #

Las bloggfrásögn fyrir ekki svo löngu ţar sem einhver lenti í ţví ađ sígarettan úr bílnum á undan lenti í loftinntakinu á bílnum hans - ţađ var víst ekki skemmtileg upplifun.

Vésteinn - 21/09/05 23:37 #

Tja, fyrst ţađ vara bara nćstum ţví geturđu svosem andađ léttar. ekki ţađ ađ ţađ hafi veriđ hinum bílstjóranum ađ ţakka. Ég var einu sinni (sem oftar) ađ reykja undir stýri. Ţegar sígarettan var búin henti ég henni út um gluggann eins og ég var vanur. Gusturinn sneri ţannig ţá stundina, ađ hún fauk beint inn um gluggann aftur og beint í aftursćtiđ. Ég eipađi náttúrlega -- á miđri Sćbrautinni -- tók handbremsubeygju inn á Kirkjusand og náđi sígarettustubbnum -- og í ţetta skipti ratađi hann rétta leiđ, út um gluggann. Ég býst viđ ađ ég hafi átt ţetta skiliđ...

Binni - 23/09/05 14:29 #

Ég sé ţig í anda međ myndavélina undir stýri. ;-)

Matti - 23/09/05 14:31 #

Ţetta er tekiđ međ gemsanum ţannig ađ ég leit ekkert rosalega kjánalegt út :-)

Hefđi ég haft myndavélina á mér hefđi ég örugglega notađ hana :-)

Mynd sem Kolla teiknađi af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com