Örvitinn

Jóna amma látin

Jóna Vilborg Pétursdóttir amma mín dó um sjö í morgun. Er búin að vera veik í nokkurn tíma, verið inni og úti á spítalanum. Hefði þurft að komast inn þar sem hún hefði fengið umönnun en það var ekki í boði.

Hjartað gaf sig í morgun. Hún var á spítalanum á verkjalyfjum, þetta var bara spurning um tíma.

Ég og Jóna Dóra heimsóttum hana á spítala um daginn, þá var hún afskaplega slöpp. Var send heim nokkrum dögum síðar. Á eftir kíkjum við á hana í síðasta sinn.

prívat