Örvitinn

"Nei, ég er meiddur"

Hef þurft að endurtaka þetta a.m.k. fjórum sinnum síðasta korterið, ég mæti semsagt ekki í inniboltann vegna þess að ég er meiddur.

Frí í leikskólanum í dag svo starfsfólkið þar geti undirbúið starfið. Stelpurnar vöknuðu að sjálfsögðu hálf sjö þrátt fyrir það. Ég skutlaði þeim til Gyðu rétt rúmlega tíu, hún tók sér frí í dag. Fór á bensínsstöð og fyllti bílinn, "eitthvað fleira" spurði afgreiðslumaðurinn og ég stökk til og náði mér í dós af Magic. Gleymdi dósinni á afgreiðsluborðinni þegar ég gekk út.

Er að fara norður á Sigló í kvöld eða á morgun. Ef við förum í kvöld gistum við í bústaðnum í nótt. Gyða fór með bílinn til að láta kíkja á vetrardekkin, sjá hvort það þurfi að skipta um þó. Held það sé lítið vit í að keyra norður án þess að vera með sæmileg vetrardekk undir bílnum.

dagbók