Borðuðum hjá tengdó í gærkvöldi og fengum slátur. Ástæðan fyrir þessum matseðli er að Ása systir Ásmundar og Jens maðurinn hennar voru að kveðja eftir stutta veru á landinu. Einnig voru bjúgu á matseðlinum, kartöflur í hvítri sósu, rófur og grænar baunir.
Við fengum þrjá lifrapylsukeppi í afgang sem verða borðaðir kaldir ofan á brauð eða með grjónagraut. Brauð með smjöri og lifrapylsu er eitt það allra besta sem ég fæ.
|
www.flickr.com
|