Örvitinn

Úti í snjónum

Kolla á skíðumSkelltum okkur út í snjóinn í dag, Kolla fór í skíðin sín í fyrsta skipti. Fékk þau í afmælisgjöf frá ömmu og afa í fyrra. Um leið var því lofað að hún yrði tekin með á skíði en eitthvað varð lítið úr því. Ég hef ekki farið á skíði síðan ég var sextán ára.

Tókum með okkur snjóþotur og renndum okkur af miklum móð, Inga María renndi sér á fullu og var ekkert að kippa sér upp við smá biltur. Þegar inn var komið fengu stelpurnar svo heitt kakó, það fylgir.

Tók nokkrar myndir og skellti undir ýmislegt í október. Þessi finnst mér koma skemmtilega út.

dagbók