Gyða á afmæli í dag, varð 29 fyrir fimm árum. Ok, hún er þrjátíu og fjögra - það er ekki eins og það sé einhver aldur :-)
Ég yfirgaf heimilið klukkan hálf sjö þegar stelpurnar sváfu enn allar (lítum hjá því að Gyða þurfti að reka mig á lappir, en hún fékk að sofa áfram) þannig að ég missti af afmælissöngnum, vonandi hafa stelpurnar sungið og ef ég þekki mömmu hennar rétt á hún eftir að hringja og syngja fyrir hana.
Við ætlum að kíkja út að borða með stelpurnar í kvöld þannig það verður ekki boðið upp á kökur og kaffi.
Þær vildu ekki syngja! Vildu hvorug byrja svo þær enduðu með að syngja ekkert en gáfu mér knús samt. En mamma er búin að syngja fyrir mig auðvitað :-)
Til hamingju með konuna :C)
|
www.flickr.com
|