Örvitinn

Hitt og þetta

Fór í ræktina og morgun og skokkaði í þrjátíu mínútur án aukaverkana. Stefni á fótbolta í Fífunni annað kvöld.

Inga María er með hita, Gyða er heima eins og er, skutlar Ingu Maríu til Gunnu á eftir.

Kemst ekki inn í Vantrúarkerfið, vesen er þetta.

10:20

Kemst inn í kerfið, búinn að færa mysql foldera (Vantrúarspjallið, Vantrúarvefurin og þessi vefur minn) af /var/ svæðinu. Uppsetning á vélinni var hálfgert klúður, /var/ svæðið er ekki nema 256MB en mysql skellir grunnunum þangað. Ég færði bara foldera og nota skráarlinka. Þyrfti að stækka /var/ svæðið en það kostar eitthvað partition vesen sem ég nenni ekki að standa í núna.

dagbók