Örvitinn

Leti

Ég fór ekki í ræktina í morgun, Jóna Dóra afboðaði sig í gærkvöldi og ég nennti ómögulega enda fór ég ekki í bælið fyrr en rúmlega eitt í nótt.

Fór ekki heldur í boltann í gærkvöldi, fannst ég ekki vera alveg nógu góður í fótunum... og svo nennti ég því ekki.

Nennti ekki að borða morgunmat í morgun, sem gerði það að verkum að ég var glorhungraður í hádeginu. Nennti ekki niður að borða lax en fór samt, hann var ágætur.

Þarf að gera ýmislegt en nenni því ekki.

dagbók