Örvitinn

Rugl

Sólstafir í BorgarfirðiHví er ég á fótum?

Svaf í þrjú korter þegar ég svæfði Ingu Maríu í kvöld. Horfði á ensku mörkin fram yfir miðnætti. Hef verið að dóla mér á netinu síðan - ekki gert nokkuð gagnlegt.

Ætlaði að vakna hálf sjö í fyrramálið. Sé ekki alveg fram á að standa við það. Hef ekki rakað mig í alltof langan tíma. Þarf að fara í klippingu.

Þetta er rugl.

dagbók