Örvitinn

Á sterum

Var að bera á mig sterakrem sem húðlæknirinn skrifaði upp á í gær. Bar á framhandleggi, kálfa og leggi. Svíður í kálfana, aðalega vinstri kálfa. Er verstur þar, hef verið að klóra mér þannig að það hefur myndast sár.

Ætli sterar bornir á húð gagnist eitthvað í ræktinni? :-P

heilsa
Athugasemdir

Erna - 26/11/05 03:33 #

Það virkar á vefjarækt (har, har, ég veit að þessi var líffræðingahúmor, en ég bara stóðst ekki mátið....)

Matti - 26/11/05 11:23 #

lol, það jafnast ekkert á við nördahúmor :)