Örvitinn

Pantaði tíma hjá augnlækni

Ég pantaði tíma hjá augnlækni. Hef alltaf verið með góða sjón en undanfarna mánuði finnst mér ég þreytast frekar mikið - þegar líður á daginn á ég jafnvel erfitt með að fókusa á skjáinn með hægra auga, er farinn að loka því og horfi bara með vinstra. Er farinn að nota þann möguleika æ oftar að stækka letrið í browser. Þegar ég skoða vel sé ég svo að ef ég horfi á hvítan flöt með hægra er þar daufur blettur sem hoppar og skoppar.

Kannski þarf ég bara betri tölvuskjá, hver veit - en ég ætla að láta skoða þetta (skrifa ég með annað augað lokað).

Fékk tíma klukkan níu þarnæsta föstudag.

Ég var með augnsýkingu þegar myndin var tekin.

heilsa