Þjóðkirkjan og samkynhneigðir, umhugsunartími kirkjunnar
Mæli með pistli dagsins á Vantrú en þar spáir Birgir í þeim umhugsunartíma sem kirkjan ætlar að taka sér útaf hjónavígslum samkynhneigðra.
2000+2
Er þetta trúverðugt? Þessi stétt manna þykist útlærð í guðsorðinu og gefur sig út fyrir að hafa kennivald yfir okkur hinum í siðferðislegum efnum. En samt er jafnstórt mál og kynlíf samkynhneigðra ekki meira á hreinu hjá þeim en svo að setjast þarf niður í tvö ár til að gá hvað guðinn er að meina með þessu. Þeir eru búnir að hafa tvö þúsund ár til þess, hvað þykjast þeir eiginlega eiga eftir að skoða?