25.12.05

Á neyðarvaktinni

Ég hefði betur sleppt því að kveinka mér útaf þreytu því þetta var bara byrjunin. Rétt rúmlega tvö vakti Gyða mig sárkvalin. Við brunuðum upp á bráðavakt og eyddum bróðurpart nætur þar, bæði í Fossvogi og á Hringbraut. Þetta er í þriðja sinn á árinu sem Gyða endar á neyðarmóttöku útaf þessum verkjum og í raun hefur ekkert ákveðið komið út úr þessu. Héldum að það væri komin greining síðast en erum ekki viss núna. Hún mætir í nánanir skoðun á miðvikudag.

Ég var dálítið mikið lúinn klukkan hálf sex í morgun.

25.12.2005 13:12 prívat
Athugasemdir

Sirrý - 26/12/05 01:53 #

Leiðinlegt að heyra með Gyðu vona að þeir fari að finna út úr þessu með hana ekki hægt að vera svona aftur og aftur. Vonandi liður henni betur.

Sirrý

Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com