Örvitinn

Afmælishelgi og nýr sófi

Jæja, þá er þessari afmælishelgi lokið. Héldum barnaafmæli í gær og fullorðinsafmæli í dag. Þetta var ágæt törn, ekkert mjög mikið mál þar sem við fengum góða hjálp.

Í kvöld kíktum við svo til Davíðs sem var að sýna húsgögn og fjárfestum í sófa í sjónvarpsstofuna. Hann barst um tíu í kvöld, er gríðarlega stór og kemur vel út að okkar mati.

Er að vinna í myndum, skelli þeim inn rétt bráðum.

02:31

Búinn að setja inn myndir fyrir síðustu þrjá daga.

dagbók
Athugasemdir

Sirrý - 09/01/06 11:54 #

Stór og flottur sófi :C) Kemur vel út en hvernig er það saknar þú ekki holunar þinnar :C)

Matti - 09/01/06 14:30 #

Veistu, ég held ég eigi ekkert eftir að sakna holunnar eða annarra parta af þessum viðbjóðslega sófa sem við vorum með í sjónvarpsstofunni. Nú munu púðarnir sem ég notaði til að fylla upp í holuna fá líka fá nýtt líf.