Örvitinn

Horft á Idol

Kolla og Inga María fá að horfa á Idol á föstudögum. Klukkan tíu bað Inga María um að fá að fara upp í rúm þar sem hún steinsofnaði um leið og hún lagði höfuðið á koddann. Kolla lá áfram í sófanum og mér fannst hún næstum því vera orðin unglingur, svo stóísk og þroskuð. Hún var samt orðin syfjuð og ég fór upp með hana um leið og þátturinn endaði. Hún sofnaði fljótt enda fór hún á fætur korter yfir sjö í morgun.

Kolbrún Matthíasdóttir
(smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu)

fjölskyldan myndir