Örvitinn

Síðufikt

Ég prófaði að skella inn myndadálki hægra megin á síðuna. Þetta eru myndir af flickr síðunni minni, valdar af handahófi í hvert skipti sem síðan er hlaðin. Hef verið að prófa flickr aðeins undanfarið og finnst það nokkuð skemmtilegt, gaman að fá feedback þar. Stefni á að útfæra svona myndadálk útfrá myndasíðunni á mínum server í stað flickr þó ég ætli að nota það áfram. Í raun er afar lítið mál að gera slíkt með Python og PIL, bara spurning um að útfæra það.

Ætla að breyta síðunni en veit ekki hvernig. Var búinn að rissa upp ýmsa hugmyndir fyrir nokkru en hef svo ekkert gert. Er að spá í fara í tveggja dálka síður, en hafa hægri dálkinn þá jafnvel tvöfaldan. Ætla að færa yfirlit yfir flokka á sér síðu en held ég haldi nýjustu athugasemdum á forsíðu.

En á næstunni verða samt ýmsar breytingar, jafnvel verður síðan í einhverju rugli en það gerir varla mikið til. Áfram verður hægt að lesa allt sem hér stendur og allar vísanir munu virka.

vefmál