07.02.06

Ælupest

Kolla er með ælupest. Ég vaknaði við það klukkan tvö í nótt að hún kveikti ljósið í hjónaherberginu, hún hafði komið upp í skömmu áður, og benti mér á koddann sinn. Ég sá ekkert, en áður en ég áttaði mig á því hvað var í gangi hafði hún ælt svona líka hressilega á dínuna.

Nóttin var eftir þessu, hún náði að sofa smá en vaknaði svo og kúgaðist.

Í morgun var hún nokkuð hress, er núna að horfa á vídeó og dunda sér með mömmu sinni. Talaði aðallega um að hún ætti að vera inni á leikskólanum fyrsta daginn eftir veikindi.

07.02.2006 10:30 fjölskyldan
Athugasemdir
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com