Örvitinn

Sambandsleysi í dag

Ef það er ekki eitt þá er það eitthvað annað (en ekki hvað?).

Vefþjónninn hefur verið sambandslaus við netið í dag vegna bilunar hjá Símanum. Vinnustaðurinn var ekki tengdur netinu á tímabilinu 11:00-17:30 í dag. Ekki alveg nógu gott ástand þegar verið er að hýsa og reka kerfi. Ég er ekki kominn með það á hreint hvað var bilað.

Það fylgir sögunni að Vantrú var niðri af þessum sökum enda sá vefur hýstur á þessum server.

Ég er reyndar ekkert alltof viss um að þetta sé komið í almennilegt lag, finnst tengingin eitthvað óstabíl, sjáum hvað setur.

tölvuvesen