Örvitinn

Þoka

Þoka í SeljahverfiÉg kann vel við þokuna, finnst stemmingin skemmtileg og rakinn notalegur.

Við röltum til Jónu Dóru og Óttars í kvöld. Jóna Dóra eldaði spagettí og kjötbollur í tilefni bolludags og fórst það vel úr hendi. Fékk pabba til að kenna sér handtökin í dag.

Dagurinn hefur verið frekar langur hjá stelpunum, sérstaklega Kollu. Hún vaknaði snemma í morgun þrátt fyrir að hafa farið seint í bælið í gærkvöldi og var því stundum dálítið erfið. Ég veit ekki alveg hvaða svipur þetta er, en hún var nú reyndar kát þarna.

Fermingarbarnið les Ísfólkið og er farin að sökkva sér í paganisma. Mér líst lítið á þá þróun en get í raun ekkert skipt mér af þar sem lítið mark er tekið á því sem ég segi. Ég veit ekki alveg hvernig amazon mun flokka mig þegar ég panta þessa bók fyrir hana (verður semsagt í næstu pöntun), sérstaklega ekki þegar þessi verður í sama pakka. Það eru semsagt draumráðningar, tarot og nornagaldrar sem ríkja á miðhæðinni. Ekki veit ég hvað presturinn myndi segja, er ekkert kennt í fermingarfræðslunni? :-)

dagbók