Við hjónin skelltum okkur í bíó í gær. Ætluðum fyrst að sjá The Constant Gardener en hún er komin í minnsta sal Regnbogans og var sýnd seint. Good night, and good luck er í minnsta sal Laugarásbíó og bara sýnd kl.8 Ég fer svo sjaldan í bíó að mig langar í stóran sal, ekki sal sem er álíka stór og stofan mín.
Ákváðum því að lokum að skella okkur í Álfabakkann kl. 10 og kíktum á Æon Flux. Við sáum kynningu á henni fyrir löngu og gerðum ráð fyrir að þetta gæti verið sæmilegur vísindaþryllir.
Ég hafði rangt fyrir mér, þessi mynd er algert drasl. Fáránleg saga, illa leikið, enginn húmor og óskaplega bjánalegur boðskapur. Í gvuðanna bænum forðist þessa mynd, hún er skelfileg.
Mér fannst þetta ágæt afþreying, ekki meira en það.
|
www.flickr.com
|