11.03.06

Southpark þátturinn um Scientology

Kári benti á þennan Southparh þátt sem tekinn hefur verið úr umferð vegna hótana lögfræðinga Tom Cruise. Ég hafði heyrt um þennan hátt og séð þetta fræga Tom Cruise atriði, þar sem hann neitar að koma út úr skápnum.

Það sem ég vissi ekki áður er að þátturinn fjallar um Scientology og inniheldur m.a. lýsingu á trúarkenningum þeirra. Það er ástæðan fyrir því að Scientology kom í veg fyrir birtingu þáttarins, ekki þetta dæmi með Tom Cruise. Ég er alveg viss um það.

Fréttaflutningur af málinu hefur því verið ansi villandi, þátturinn kemur miklu ver við Scientology heldur en Tom Cruise. Skápamálið er bara hliðarsaga.

"We are going to sue you, you think you can say our religion is a lie, we are going to sue you buddy"

Lokaatriði þáttarins segir allt sem segja þarf um þetta rugl.

Samt eru einhverjir væntanlega á þeirri skoðun að maður eigi að sýna þessu Scientology liði virðingu og það sé ódrengilegt að gera svona grín að þeim :-) (nei, ég segi bara svona)

11.03.2006 17:36 efahyggja
Athugasemdir

Kristján Atli - 12/03/06 18:09 #

Frábær þáttur. Takk fyrir að vísa á þetta, hef viljað sjá þetta í dágóðan tíma núna og vissi ekki að þetta væri á netinu.

Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com