Örvitinn

Kolla í ballet

Fórum á sýningu í Borgarleikhúsinu í kvöld, balletskólinn hennar Kollu var með sýningu og hún fór á svið í fyrsta sinn. Þetta var mjög gaman, flott sýning og gaman að sjá Kollu og hinar litlu stelpurnar.

Kollu þótti þetta lítið mál, var ekkert stressuð fyrir og skemmti sér vel í dag. Þetta var langur dagur hjá henni, hún var mætt í Borgarleikhúsið klukkan þrjú og var þar til átta. Það er afar gott skipulag á þessu hjá Klassíska listdansskólanum og það var ýmislegt gert fyrir börnin til að stytta þeim stundir.

Ég tók nokkrar myndir. Það var hrikalega erfitt að ná góðum myndum, ég náði engri góðri af Kollu þegar hún var að dansa en náði henni í uppklappinu. Náði samt einhverjum ágætum myndum þegar leið á sýninguna (1, 2).

fjölskyldan